Já ég held að það sé ekki hægt að segja annað en að landsmót hafi heppnast vel. Frábær skemmtun frá upphafi til enda Tónleikar þrjú kvöld í röð, Súpan, maturinn, frábært veður og skemmilegt fólk.
Móthaldararnir eiga náttúrulega skilið stærsta hrósið, undirbúningvinna fyrir mótið er búið að standa síðan um áramót og uppskárum við þetta frábæra mót út af þeirri vinnu.

Aðdáun mín er á mótshöldurunum sem lögðu svo mikið á sig svo mótið myndi heppnast svona vel, takk Sigga, Gunni, Dísa, Biggi, Stefán Steingríms og allar hjálparhellurnar og þeir sem sáu um að við skemmtum okkur svona súpervel, þið eruð snillingar“
- Eydís með nýju súpuausuna
- Leikar
- 400 manns í fóðri..
- leikar
- Jokka tók lagið með Húnabandinu,
- Grillkóngarnir Saxar MC
- Hjól Mótsins BOSS HOSS 800 kg hjól og álíka mörg hestöfl
- Tunnveltan var strembin,.
- Skutlur fengu aftur á móti Búningaverlaunin
- Tunnudráttur með farþega.
- Skessan mætti og vildi buningaverðlaun..
- Húnaver getur tekið við miklu fleirum 🙂
- Matarveislan mikla
- Kósi í góðu velri.
- Stebbi Jak með Dimmu
- Ofurfólkið Sigga og Gunni héldu mótið ásamt Bigga, Eydísi
Fimmtudagur…
Fyrsti dagur Landsmóts er á fimmtudagskvöldið og er Landsmót sett með tónleikum, að þessu sinni var það Dalvíkingurinn Eyþór Ingi og hljómsveit sem störtuðu landsmótinum og var hörku fjör,
Fólk var risið á fætur eldsnemma um hádegi, og fengu sér morgunverði að öllur gerðum ,,, fljótandi eða í föstu formi 🙂 einhverjir hjóluðu í sund og aðrir sturtuðu sig á staðum. Leikir voru á dagskrá um miðjan dag og voru það fyrri umferð leikjadagskrár, og sáu Sober riders um þá.
Leikir úrslit……….
Pole in the hole: Lexi og Gulli……..
Tunnuvelta: Doddi Kröss…
Kokgleypan: Víðir Hermanns og Óli prik
Endsnemma eftir hádegi voru menn og konur,,,, að skriða úr tjöldum (húsbílum) ,, Sumir fóru náttúrulega út að hjóla og aðrir sleiktu sólskinið..Dagskráin í dag var svipuð,,,
Soberleikar voru um miðjan dag, Keppt var í Snigli ,,, Haus á staur, og fl

Óli Prik sigraði í Kokgleypunni og lét ekki það duga, hann sigraði líka í Sniglinu, svo hann er Snigill ársins. (þess má geta að Óli er af annar kynnslóð hjólamanna á mótinu en hann er sonur „Líklegs #56 og Sunnu.“)
Úrslit
Haus á staur..sigraði Nóri….
Dragrace Jón Gústi og Bjarni.
Sniglið tók Óli prik
Tunnudráttinn Víðir Hermanns og Kári kantsteinn.
Saxar sáu svo um að grilla stóreflis steik ,,, kola grill fyrir um 400 manns og gekk það ótrúlega vel, og maturinn
góður. Naut og svín og meðlæti, fullkomið.
Eftir að fólk var búið að liggja á meltunni var Happdrætti og verðlaunaafthöfn fyrir bæði leikana og búningaverðlaunin. Síðar um kvöldið var komið að hápunktinum….. Dimmutónleikar….. STURLAÐ FJÖR.
Sunnudagur…. líklega þunnudagur ,,,,,, allir heim kveðjast pakka bæ,,, þið voruð æði….hlakkar til næst.