Árið 2022 kom út bókin Ameríska goðsögnin, sem vakti mikla athygli og fékk afar góðar viðtökur. Í þessari veglegu bók beinist kastljósið að evrópsku mótorhjólunum og áhrifum þeirra á íslenska mótorhjólasögu.
Mótorhjólið hefur í meira en öld verið tákn frelsis og ævintýraþrár. Um leið endurspeglar heillandi saga þess tækniframfarir og breytta tíma.
Í þessari bók er rakin saga evrópskra mótorhjóla hér á landi – frá fyrstu hjólunum sem ruddu sér leið um íslenska vegi til þeirra fjölbreyttu gerða sem síðar urðu hluti af samfélaginu. Fyrsta heimsókn til landsins á vélknúnu ökutæki átti sér stað þegar Englendingurinn L.W. Spencer þeysti um héruð á Rover-mótorhjóli árið 1913. Innflutningur hófst svo fyrir alvöru nokkrum árum síðar þegar Ísland varð fullvalda ríki og landinn flutti inn mótorhjól með tíðari ferðum fiskiskipa. Koma breska hersins hafði sín áhrif og eftir seinna stríð bárust hingað fleiri form mótorhjóla, eins og skellinöðrur og vespur ýmiss konar.
Höfundurinn, Njáll Gunnlaugsson, er þekktur fyrir þekkingu sína á gömlum mótorhjólum en áhugi hans á þeim kviknaði þegar hann fékk til varðveislu nokkrar sögulegar ljósmyndir frá Hilmari Lútherssyni fyrir meira en 30 árum. Hilmar lést snemma árs 2025 og tileinkar höfundur honum verkið enda sagði Hilmar alltaf „breskt er best“ þegar kom að mótorhjólum. *
Fullkomin gjöf í jólapakkann fyrir bifhjólamanninn.
Ameríska Goðsögnin (Áritaðar af höfundi) í vefverslun Tíunnar www.tia.is
Hin goðsagnakenndu Harley-Davidson-mótorhjól þarf ekki að kynna fyrir neinum, enda muna flestir eftir vígreifum lögreglumönnum á slíkum gæðingum. Færri vita hins vegar að þetta voru vinsælustu mótorhjólin á fyrri hluta síðustu aldar þegar sannkallaðar hetjur riðu um héruð landsins á vélfákum. Hér er saga Harley-Davidson á Íslandi rifjuð upp í máli og myndum, allt frá því að fyrstu mótorhjólin birtust árið 1917. Eftir gullöld einstaklingshjólanna á þriðja og fjórða áratugnum tók lögreglan þau í þjónustu sína og þá upphófst einn merkilegasti kaflinn í sögu þeirra. Í bókinni er einnig fjallað um nokkrar aðrar gerðir amerískra mótorhjóla sem bárust hingað til lands á liðinni öld. Höfundurinn, Njáll Gunnlaugsson, er landsþekktur áhugamaður um mótorhjól og hefur lengi rannsakað sögu þeirra. Hann skrifar reglulega um bíla og mótorhjól í dagblöð og á samfélagsmiðla, samhliða því að kenna Íslendingum að aka þessum undratækjum
Kaupa áritaða bók










