...

Já enn eitt árið er komið, og því fylgja alltaf einhveri fastir liðir, nú eins og að endurnýja félagsgjöldin í klúbbnum

Við hækkum ekkert félagsgjaldið í Tíunni þó svo allt annað hækki.  En við reiknum með að senda út greiðsluseðlana í lok janúar.
Seðlarnir munu líka vera með einhvern eindaga en þeir munu samt sem áður hverfa úr netbönkum ykkar í byrjun júní þó auðvitað sé best að greiða þá til að þeir hverfi fyrr.  Engir vextir falla á greiðsluseðla þó þeir falli í eindaga hjá okkur.

Í fyrra prófuðum við að bjóða félagsmönnum að sleppa við kostnaðinn af því að vera að borga seðilgjöld sem er reyndar okkar beggja hagur því þetta eru einhverir hundraðkallar sem ættu frekar að vera í okkar veski en bankanna.   Þetta heppnaðist reyndar svo vel að nánst helmingur félagsmanna borgaði félaggjöldin sín með millifærslu.

Það er semsagt hægt með að greiða 5000kr  inn á 1187-26-200610    kt 591006-1850.

Athugið að 2000kr af félagsjöldum Tíunnar renna beint sem styrkur til Mótorhjólasafnsins svo hægt sé að halda uppbygginu þess áfram.

Gott hjólaár framundan þó það líti kannski ekki út fyrir það akkurat í Janúar  🙂

Kv Formaður

ps.

Svo er einnig hægt að ganga í klúbbinn á vefsíðunni okkar
www.tia.is/verslun sem og greiða félagsjöldin.
Seraphinite AcceleratorOptimized by Seraphinite Accelerator
Turns on site high speed to be attractive for people and search engines.