Ferða og útivistarfélagið Slóðavinir var stofnað 2008. Stofnafélagar voru 120 talsins en æá hverju ári bættist í hópinn og fjöldi greiddra félaga er nú í kringum 500 og eru á öllum aldri, báðum kynjum og búa um allt land.

Slóðavinir er félag fyrir þá sem hafa áhuga á að ferðast um landið á vélhjólum eftir fáfarnari jeppavegum og slóðum.  Félagarnir nota til þess vélhjól sem sérstaklega eru búin fyrir malarvegi og torfarna vegslóða.  Slík vélhjól eru þó skráð eins og hver önnur vélhjól og lögleg á öllum vegum landsins. Margir nota svokölluð Enduro hjól (í raun sérútbúin mótorkrosshjól ætluð og skráð til vegaaksturs) og aðrir ferðast á fjórhjólum.

Í seinni tíð hafa orðið vinsæl svokölluð ,,ævintýrahjól“ sem eru stærri hjól sem eru þægilegri til notkunar í lengri ferðir á malbikuðum vegum, en henta einnig á jeppavegi og slóða (þó síður fyrir alla torfærustu slóðanna). Í þessum flokki finnast gjarna eldri félagarnir, þó nokkra þeirra megi einnig sjá á léttari Endúro hjólunum líka.

Aldursbil er frá 25-30 ára til rúmlega 65 ára. Vélhjólamenning Íslendinga er í raun svo ung að þeir sem hafa stundað þetta frá unglingsaldri, eru ekki orðnir mikið eldri en 65 ára um þessar mundir.   Árlega stendur félagið fyrir fjölda viðburða fyrir félagsmenn.  Yfir sumarið er farið í lengri og styttri ferðir en yfir vetrarmánuðina eru haldin námskeið og fundir. Haldin eru mynda og ferðasögukvöld og svo ýmis námskeið eins og td. skyndihjálparnámskeið, byrjendanámskeið, rötunarnámskeið og ýmislegt fleira.   Hjá slóðavinum er lögð áhersla á ábyrga umgengni um náttúruna, öryggismál og ekki síst virðingu við annað ferðafólk.

Félagið hefur látið til sín taka í hagsmunagæslu fyrir ferðafólk á tví og fjórhjólum og hefur meðal annars  fundað með ráðherrum, starfsmönnum stofnanna og fengið erlenda sérfræðinga hingað til lands til að ræða við embættismenn stjórnsýslunnar um nauðsyn og aðferðir við stjórnun þeirrar auðlindar sem slóðakerfi íslands er.

Fyrir alla aldurshópa.

,,Sjáfur hef ég bakgrunn í vélhjólaíþróttum frá unglingsaldri og er af fyrstu kynslóð íslendinga sem stundað hafa keppni í Motocross og Enduro. Þó ég hafi tekið þátt í keppnum í motorcross og endúro fram á þennan dag þá hefur, með hækkandi aldri keppnisharkan linast ögn, og við eldri herrarnir leggjum orðið meiri áherslu á ferðalög um landið. Slóðavinir var einmitt stofnað af þeim sem minna vildu keppa og höfðu meiri áhuga á að ferðast og stunda útivistina og hreyfinguna, „segir Einar Sverrisson, virkur félagi í slóðavinum, sem segir að vélhjólaíþróttin henti öllum, óháð aldri, sem vilja skoða landið með öðrum augum.

Úr tímariti félags eldriborgara 2019

 

https://www.facebook.com/slodavinir/photos/a.175591589207123/3511820222250893