Tían Bifhjólklúbbur ásamt Mótorhjólasafninu stóðu saman að hjóladögum um helgina.
Og það er ekki hægt að segja annað en að þeir heppnuðust vel. Veðurfarið er oft stór partur í velheppnuðum samkomum og voru veðurguðirnir með okkur að þessu sinni.
Nokkuð hlýtt, sólin lét sjá sig og gott veður.
Dagskráin í bænum var fjölbreytt þar sem bíladagar voru á sama tíma og voru margir mótorsportviðburðir alla helgina hjá bílaklúbbnum og nokkrir hjá Tíunni.
Þetta árið ákvað stjórn Tíunnar að sníða dagskrá Hjóladaga eftir dagskrá Startup Mótorhjólasafnsins.
Föstudagskvöldið var eins og áður partýkvöld. Þá hittumst við á efri hæð safnsins, opnuðum nokkra bauka og hittum mann og annan. Fólk var að koma og fara allt kvöldið og í heildina góð mæting.
Laugardagur.
Stjórn Tíunnar ákvað þarna að nota þennan dag sem fjáröflunardag fyrir safnið.
Við vorum að undirbúa við Mótorhjólasafnið um morguninn þar sem stillt var út hjólum og þau shænuð til. Swapmeet borð sett up og grillið gert klárt.
- Virkilega góð mæting var á Startupið. og það heppnaðist svona gríðalega vel, sennilega langbesta mæting frá upphafi, fullt af hjólum og fólki sem naut dagsins til fullnustu.
Fullt af eldgömlum og aðeins yngri hjólum af safninu startað í gang með tilheyrandi reyk og stundum sprengingum, gladdi alla og eftir það var farið í litla hópkeyrslu á gömlu hjólunum niður í bæ. - Eitthvað var fólk að koma og fara en 107 hjól á planinu á meðan mest var.
- Áætlað að um 200 manns hafi mætt í það heila.
- Boðið var upp á Swapmeet á planinu. Þeir sem voru með vörur á swapmeetinu seldu helling af dóti og voru nokkuð sáttir og vonandi verða fleiri með vörur á næsta móti!
- Stjórnin grillaði langsteik og drykk með því fyrir alla sem vildu.
Þótti hafa tekist vel til með þetta það að tengja Hjóladaga við hina tvo viðburðina og klárlega verður þessi aðferð skoðuð að ári.
Sunnudagur.
Á sunnudeginum var planað að fara í smá mótorhjólaferð, og var talað um 3 tíma ferð.
Áfangastaðurinn átti að vera valinn á staðnum, og það varð úr að þessu var hagað eftir veðri og vindum, það var nefnilega rigning austan við okkur svo við fórum í vesturátt.
Það var ellefu hjóla hópur lagði í ferð upp úr hádeginu. Fyrsta stopp á Samgöngusafninu í Stóragerði í Skagafirði. Þar sem sumir fengu sér traktorsvöfflu, að sjálfsögðu með rabarbarasultu og rjóma. Einhverjir höfðu aldrei komið þarna áður og notuðu þvi tækifærið og skoðuðu sig um á safninu. Þegar niður á þjóðveg var komið beygðu einhverjir til hægri og tóku Siglufjarðarleið heim en flest tóku vinstri beyju. og rendu á Sauðárkrók og inn á Kaffi krók og fengið sér almennilega að borða.
Eftir það haldið heim á leið. og allir glaðir með ferðina sem var reyndar ekki 3 tímar heldur nærri því 6 tímar! En það hafði enginn áhyggjur af því, því þetta var svo gaman.
Takk allir fyrir góða helgi.