Fjöldi fólks úti um allan heim hefur farið í sitt fínasta púss og hjólað um götur heimaborgar sinnar, til styrktar heilsu karla. Í ár söfnuðust samtals sex milljónir dollara í átakinu Herramenn á hjólum.
Áhugamenn um vélhjól klæddu sig upp og óku á hjólum um stræti Reykjavíkur á sunnudaginn síðastliðinn, til þess að vekja athygli á löðruhálskrabbameini og andlegri heilsu karla. Viðburðurinn, The Distinguished Gentleman’s Ride, eða Herramenn á hjólum, er upprunninn í Ástralíu og var í ár haldinn á Íslandi í fyrsta skipti. Jafnframt fer fram söfnun til styrktar málstaðnum á heimasíðu viðburðarins en í ár hafa sex milljónir dollara safnast í átakinu, þar af sex þúsund dollarar á Íslandi.
Viðburðurinn hefur verið haldinn víða um heim en var fyrst haldinn í Ástralíu árið 2013. Kveikjan að viðburðinum var mynd af Don Draper í Mad Men
þar sem hann ók sígildu vélhjóli og klæddist fínum jakkafötum. Hinn ástralski Mark Hawwa, sem átti frumkvæði að viðburðinum, ákvað þá að sniðugt væri að koma á fót viðburði þar sem áhugafólk um vélhjól kæmi saman og hjólaði á sígildum vélhjólum í sparifötunum. Tilgangurinn með þessu væri að vega á móti neikvæðri staðalmynd vélhjólamanna, ásamt því að hrista saman hópinn.
Hjólað í 650 borgum
Fyrsta hjólaferðin, árið 2012, sameinaði 2.500 vélhjólamenn í 64 borgum. Viðtökurnar hvöttu Hawwe til að nýta áhugann í verðugt málefni, og ákvað hann því að nota hann til að vekja athygli á heilsu karla, s.s. sjálfsvígshættu og blöðruhálskrabbameini.
Í ár hjóluðu um 120 þúsund manns til styrktar málstaðnum, í 650 borgum. Daði Einarsson, einn skipuleggjenda viðburðarins, segir að andrúmsloftið hafi verið gott á sunnudaginn. „Það var mjög gaman að sjá allt þetta fólk koma niður á höfn, þvílíkt skemmtilega og fallega uppstrílað á fögrum fínpússuðum hjólum. Fólk fór að tala um hvað þetta yrði skemmtilegra á næsta ári og ég á von á því að enn fleiri mæti þá. Það var ofboðslega mikil gleði og hamingja, fólki fannst gaman að hjóla um borgina
svona vel uppáklætt,“ segir Daði.
„Það er algengara núna að fólk sé að kaupa sér gömul hjól og gera þau upp eins og þau voru upprunalega og breyta þeim aðeins. Þessi menning hefur vaxið undanfarin ár, menning þar sem menn eru farnir að klæða sig stílhreint og gera upp gömul mótorhjól og gamla bíla,“ segir Daði. Daði, sem sjálfur er áhugamaður um vélhjól, hafði heyrt af viðburðinum úti í heimi og séð myndbönd af honum á netinu. Þá voru margir sem hjóluðu í Reykjavík vel kunnir Herramönnum á hjólum og höfðu jafnvel tekið þátt í viðburðinum erlendis. Daði tók stofnendur viðburðarins í Ástralíu tali og sagði þeim lauslega frá áhuganum á að halda viðburðinn hér á landi.
„Ég býst fastlega við því að við munum gera þetta árlega. Það var mikil ánægja með þetta og mikil spenna yfir þessu. Það sem ég held að við munum skoða á næsta ári er að láta framlögin renna beint í hjálparstarf hér á Íslandi, en ekki einungis erlendis, svo að fólk viti betur hvað það er að styrkja.“
Kveikjan að viðburðinum
var mynd af Don Draper
í Mad Men þar sem hann
ók sígildu vélhjóli og klæddist
fínum jakkafötum.
Ljósmyndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is Texti: Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is
Mbl.is 2018
https://www.gentlemansride.com/