Hjólastólavinir leigðu sér þyrlu til að hitta mótorhjólavini sína
Tveir vinir í hjólastólum, sem báðir slösuðust í sitt hvoru slysinu á mótorhjólum í byrjun sumars komu vinum sínum í BMW mótorhjólaklúbbnum heldur betur á óvart í gærkvöldi þegar þeir mættu á þyrlu í Galtalækjarskóg til að taka þátt í veislu klúbbsins.
Þyrlan, sem félagarnir leigðu frá Reykjavík kom við á Selfoss og sótti fréttamann og svo var haldið beint í Galtalæk í Rangárþingi ytra og þar datt andlitið nánast af mönnum þegar þeir sáu þyrluna koma og félagana sína tvo í hjólastólunum koma út úr þyrlunni.
Til að hafa húmorinn í lagi var þyrlan merkt sem Sjúkradeildin enda félagarnir búnir að vera meira og minna á sjúkrahúsi og á Grensás í sumar. Hér erum við að tala um þá Guðna Þorbjörnsson og Hjört L. Jónsson, sem báðir eru í hjólastólum eftir sitt hvort mótorhjólaslysið en þeir vonast þó báðir til að losna úr stólunum með tíð og tíma eftir mikla endurhæfingu.
Þeim var vel fagnað við þyrluna af félögum sínum í BMW Mótorhjólaklúbbnum með allskonar faðmlögum
„Það átti eiginlega engin von á þessu en þessir drengir klikka ekki á einu eða neinu, það er alveg sama hvað þeir taka sér fyrir hendur, þeir bara ganga í hlutina og klára þá,” segir Guðmundur Ragnarsson, formaður BMW mótorhjólaklúbbsins.
„Við erum búnir að sitja saman inni í allt sumar,” segir Hjörtur og bætir Guðni við „á Landspítalanum og sjúkra eitthvað.“
„Ég var mjög veikur þannig að ég endaði líka í hjólastól og var með honum á spítalanum,” segir Guðni.
Og þið eruð saman í þessum skrýtna karlahóp?
„Já, þetta er mjög flottur hópur og þetta eru okkar traustustu og bestu vinir, sem við eigum,“ segir Guðni. „Við söknuðum þeirra svo mikið að við ákváðum að hitta þá hér í kvöld,“ bætir Hjörtur við.
„Það eina sem við gátum gert var að fá þyrlu til að skutla okkur hingað og hitta vinina og hérna erum við,” segir Guðni alsæll.
Og þyrluflugmaðurinn hafði gaman af fluginu.
„Já, já, maður lætur plata sig út í allskonar. Þetta er mjög skemmtilegt enda mjög góður hópur, sem við erum að hitta hérna og búið að vera mjög gaman bara,” segir Reynir Freyr Pétursson, þyrluflugmaður hjá HeliAir Iceland.