Árleg hópkeyrsla mótorhjólafólks í minningu Heiðars Þórarins Jóhannssonar var á fimmtudaginn, 15. maí, en þann dag hefði Heiðar orðið 71 árs. Hann lést af slysförum árið 2006 og í mörg ár hafa félagar í Tíunni, bifhjólaklúbbi Norðuramts, farið slíkan minningarakstur einu sinni á ári. Klúbburinn var stofnaður árið sem Heiðar lést, í minningu hans, og nafnið er þannig til komið að Heiddi var Snigill númer 10; félagi númer 10 í Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Sniglunum.

Hópur fólks kom saman í Kirkjugarðinum á Naustahöfða þar sem krans var lagður að leiði Heidda og síðan var um 50 hjólum ekið frá kirkjugarðinum, inn að Hrafnagili og aftur til Akureyrar, þar sem Tían, Bifhjólaklúbbur Norðuramts, bauða upp á vöfflur og tertu, kaffi og gos, eins og hefð er orðin fyrir.

https://www.akureyri.net/

Myndir: Þorgeir Baldursson