Um miðjan júní 2026 fóru félagarnir Unnar Þorsteinn Bjartmansson, Valdimar Guðmundsson og Jón Helgason í meiriháttar ferðalag um Indland á mótorhjólum!
Dagbókarfærslur Unnars rekja ferðina í grófum dráttum.
15.júní
Það er ekki laust við að það sé smá spenningur í manni. Komum til Delí í gærmorgun eftir langt flug og erum að reyna að koma okkur á réttan tíma. Eftir hádegið á morgun hittum við hópinn og förum með rútu til Malani. Þetta verður eitthvað.
16.júní
Það var magnað að vakna í Manali eftir að hafa komið hingað í svarta myrkri eftir 12 tíma rútuferð. Komnir í 2000 metra hæð og allt annað loft að anda heldur en í Delí. Fáum hjólin í prufuakstur á eftir. Rólegur dagur sem er ágætt eftir ferðina í gær. Grunar að þetta verði geggjað. Og já til hamingju með daginn.
17.júní
Fyrsti alvöru keyrsludagurinn frá Manali til Ani. Lítið tekið af myndum enda fór dagurinn í að keyra þessa 150 km. Fyrsta fjallaskaðið að baki sem var rúmir 3000 metrar í svakalegri rigningu. Allt á veginum sem oftast var lítið breiðari en þokkalegur hjólastígur, beljur, hundar rútur og urmull af fólki og bílum. Kúlutjald í nótt og spýtukamar sem ég þori ekki að skoða strax
19.júní
Dagurinn í dag snerist um að þrauka. Keyrðum frá Ani til Kalpa sem er virkilega flottur bær í ca 2750 metra hæð. Vegirnir allskonar með ævintýralegum skriðum og viðgerðarköflum. Umferðin snargeðveik en rólegri þegar á leið. Nóttin fór í dásamlega magakveisu ásamt allavega 6 úr hópnum og einhverja srarfsmenn. Svo svefninn var kannski klukkutími. Hitinn um 35 gráður og sól svo það var kærkomið að komast í næturstað og sturtu. Reikna með að þessi nótt verði tekin í langan svefn
20.júní
Dagurinn í dag var geggjaður. Skemmtilegustu vegir sem ég hef hjólað. Umferðin miklu minni og nokkuð úthvíldur. Farið var frá Kalpa til Nako sem er næturstaðurinn í 3625 metra hæð. Maður finnur alveg fyrir hæðinni. Heljarinnar vegabréfatékk í Kalpa sem tók drjúga stund og skoðuðum verslunargötuna þar. Hjóluðum Spitidalinn sem er mögnuð leið. Vorum 80km frá Kínversku landamærunum eða Tíbet. Nako er einangrað þónokkurn hluta úr árinu og enginn flugvöllur. Eins og maður var búinn á því í gær þá var þessi dagur með ólíkindum
22.júní
Magnaðir dagar. Netlausir í gær og framan af degi í dag. Höfum haldið okkur í Spitidalnum enda er hann býsna langur. Fórum frá Nako og skoðuðum Gue búddahofið þar sem sem húkir 500 ára gömul múmía. Herinn vel sýnilegur enda bara 25km til Tíbet. Skoðuðum annað hof í Tabo sem er yfir 1000 ára gamalt með upprunalegum myndum á veggjum. Kúlutjöld á bökkum Spiti árinnar varð næturstaðurinn sem var ljómandi þrátt fyrir klósetttjöld með grunnum holum. Ì dag var endað í Kaza í 3650m hæð eftir að hafa keyrt hring upp í fjöllin. Þar sáum við hæsta þorp í heimi Komic í 4625 metra hæð, drukkum kaffi í hæsta veitingahúsi heims og fórum á hæsta pósthús í heimi. Báðir dagar um 80km sem reynist feikinóg í þessu umhverfi og vegum og hitastigið nokkuð íslenskt
- fólk að afla sér viðurværis við veginn.
- Gue búddahofið
- Gue búddahofið þar sem sem húkir 500 ára gömul múmía.
- 500 ára gömul múmía.
- Það er ólíklegt að þessi tegund sé til á íslandi 🙂
24.júní
Dagurinn í dag var frá Chandaral til Sissu um 90km. Lækkun um ca 1000 metra. Stórskemmtilegir malarvegir megnið af leiðinni og margt að sjá, geitur, kindur og hross og allt hitt. Komnir snemma í náttstað
Erum í mjög takmörkuðu neti. En gistum í lúxustjöldum í gær í Sarchu í ca 4350m hæð. Ágætissvefn og að sjálfsögðu meira immodín. Hitinn trúlega niður fyrir frostmark í nótt. Eknir ca 110km í gær. Í dag fórum við til Leh þar sem verður tekinn hvíldardagur á morgun. Ca 3500 metra hæð og mjög flott hótel. Eknir ca 260 km sem er býsna mikið í þessu landslagi. Fórum yfir þrjú fjallaskörð í dag og eitt í gær þar sem það hæsta var 5320m. Þetta er bara bilun.
28.júní
Hvíldardagurinn í gær í Leh var kærkominn. Skemmtileg borg og miklu hreinni og snyrtilegri en það sem við höfum séð hingað til. Erum á leið tik Hanle og býst ekki við neti fyrr en eftir tvo daga. Á morgun förim við hæsta veg í heimi. Komnir á ný hjól því hjól frá öðrum svæðum mega ekki notast undir túrista hér. Eitthvað sem mætti skoða heima
Erum í mjög slitróttu neti. Vorum í Hanle á hóteli í gær í ca 4300m. Dagurinn í gær endaði í 250km sem var toppað í dag með 330km. Þetta eru mjög góðar dagleiðir í Indlandi. Byrjuðum á skemmtilegum slóðum í morgun og fórum upp á Umling La í 5798m hæð. Keyrðum eftir grösugum sléttum þar sem voru hjarðir af geitum, kindum, jakuxum og villihestum. Enduðum daginn við Panglong lake sem er hæsta saltvatn í heimi. Horfum á Kína hinu megin við vatnið
Eins og þetta er búið að vera galið gaman þá er viss léttir sð vera kominn aftur til Leh og búinn að skila hjólinu óhappalaust. Fórum frá Pangong vatni rétt um 8 og keyrðum ca 150 km. Leiðin lá meðal annars um Changla pass í 5360m hæð. Keyrt um ótrúlegar skriður og sneiðinga. Urmull af fólki sem virðist vinna við að henda grjóti af veginum og leiða vatn hentugar leiðir. Nánast allt unnið á höndum. Ótrúlegt að vera í 3500 metra hæð og sjá hitamælinn detta í 37 gráður í bilaðri borgarumferð. Fyrst við erum hérna ákvað Dalai Lama að kíkja líka til Leh
- Strax og Unnar kom úr Fluginu á íslandi Var Brunað á Landsmót Bifhjólafólks á Blönduósi og keppt í Snigli.
2.júlí
Þá erum við komnir úr fjöllunum. Lentir í Delí aftur





















































































