
Dean Harrison Honda
6 júní
Superstock Race 2 (keppni umboðanna) 
Eins og við var að búast þá grunaði manni að Michael Dunlop BMW , Dean Harrison (Honda) og David Todd (BMW) myndu slást um sætin. En eftir erfiða byrjun hjá Dunlop þar sem hann datt niður í 6 sæti í fyrsta hring þá var maður farinn að halda að hann yrði ekki þar á meðal.
Dean Harrison (Honda) tók allavega foristuna strax frá byrjun og var með þægilega 16 sekundna foristu á síðasta hring. líklega út af því að David Todd lenti í brasi í pittnum og tafðist.
Dunlop (BMW) tók samt vel við sér og vann sig upp í 3 sætið. 30 sekundum á eftir David Todd (BMW) .
Á morgum Laugardag verður keppt í Senior TT (Tourist Trophy) og svo þríhjólunum eða Sidecar. Keppnin er sú síðasta í mótinu. og byrjar kl13:00 ef veður skemmir það ekki

Þarna má keppa á Rándýru superbikekeppnishjólunum…
Í fyrra 2024 sigraði David Todd á BMW í öðru sæti varJosh Brooks (BMW og þriðji var Dean Harrison..(Honda) verður gaman að sjá hvernig fer á morgum.
_________________________________________________________________________________________

4 Júní Michael Dunlop 32 sigrar.
Keppni dagsins á Mön nánast sama sagan og í gær! Nema nú eru sigrar Michael Dunlop orðnir 32 á TT.
Supersport keppni nr 2 var í dag á eyjunni Mön og voru eknir fjórir hringir.
Úrslitin voru ekkert sérstaklega óvænt , þar sem Dunlopinn bætti enn í frægðarbókina sína með sigri á Ducati.
Dean Harrison fylgdi á eftir á Honda, næstum hálfri mínutu síðar og þriðji varð svo David Todd á Honda . svona svipað og hefur verið í keppnunum undanfarið þá eru þessir þrír á palli , bara á mismunandi hæð.
Á Morgum er stefna á að vera með Superstock race 2 (Keppni umboðanna) og verður fróðlegt að sjá hvort Dunlopin muni taka einn sigurinn enn þá fyrir BMW eða að kannski muni Honda sigra aftur

____________________________________________
4. Júní
Michael Dunlop sigur númer 31. á TT.
Keppt var í Supertwin flokki strax á eftir Superstock keppnina í dag.
Og þar var það Michel Dunlop sem hoppaði á milli hjóla yfir á MD Racing Paton og sigraði nokkuð örugglega tveggja hringja keppnina með 22.6 sek mun. Hraðari hringurinn hjá honum var 122.610 mph en það var nokkuð rök brautin þarna seint í dag.
Annar varð Michael Evans (Dafabet Racing Kawasaki) og þriðji Rob Hodson (SMT Racing Paton)
En þeir tveir voru þar með að fara í fyrsta sinn á verðlaunapall á TT.
Michael sagði að hjólið hefði virkað óaðfinnanlega og þegar hann sá að hann var með 10 sekundna forskot eftir fyrsta hring þá róaði hann sig aðeins.
Þetta var 48 sinn sem Dunlop er á verðlaunapalli á TT sem þýðir að hann hefur verið á verðlaunapalli í yfir 52% af þeim keppnum sem hann hefur tekið þátt í á TT.
Og það er víst nóg eftir af keppnum í vikunni, og á morgum er keppt í Supersport seinni keppninni. ´já það eru tvær Supersport keppnir

semsagt 600cc 4cyl 675cc 3 cyl og upp undir 1000cc tveggja cylindra.
____________________________________________________________________________________
3.júní
Eftir talsverðar tafir í dag og frestanir þá hófst keppni á Mön síðdegis.
Og að þessu sinni var það Superstock keppnin ,eða Keppni umboðanna eins og ég sagði í gær.
Eknir voru tveir hringir að þessu sinni og því þurftir ekki að taka bensín. Uppi sem sigurvegari stóð svo Honda Ökumaðurinn Dean Harrison og var það hans fjórði sigur í TT frá upphafi en hann sigraði keppni á TT síðast 2019. David Todd á BMW var svo annar og Michael Dunlop BMW varð þriðji.
Dean sigraði þessa keppni með talsverðum yfirburðum eða rúmum 11.6 sekundum.
Keppnin byrjaði á því að BMW ökumaðurinn David Todd tók foristuna og leiddi keppnina með 0,2 sek á Glen Helen, og Dunlop var þriðji.
Á næsta tímtökusvæði Ballaugh var Todd búinn að auka foristuna í rúma sekundu.
En svo þegar kom að því að aka yfir heiðina eða the Mountain. Þá byrjaði Harrison að höggva á foristuna.
Eftir fyrsta hring þá leiddi Todd með 0,4 sekúndu.
Harrison ók svo mun hraðar seinni hringinn og náði framúr áður en hann kom að Glen Helen og eftir það var ekki aftur snúið og hann sigraði eins og áður sagði með 11,6 sekundna mun.
Hann ók seinni hringinn á 135.692 mph
Þetta var fyrsti sigur Honda í Superstock keppninni í 12 ár en þá ók Michael Dunlop fyrir Hondu og sigraði 2013.
__________________________________________________________________________________________________________

2 júní
Í fyrramálið kl 10 er áætlað að Superstock keppnin verði á Isl of Man TT.
Sá flokkur inniheldur verksmiðjuframleidd hjól upp að 1000cc og það má nánast ekkert eiga við þau, þ.e þau eiga nánast að vera eins og þau eru úr búðinni þegar keppt er á þeim.
Einhverjar smávægilegar breytingar eru leyfilegar í öryggisskyni. en ekkert má eiga við vél grind,eða rafmagn.
Allir sem keppa á Isl of Man eru á Metzeler dekkjum en það er samningur sem keppnishaldarar gerðu sem gildir til 2027 við Dekkjaframleiðandann
Keppnin í fyrramálið er einmitt keppni umboðanna þannig séð.

Þeir sem vilja virkilega sjá þetta, þá er hægt að kaupa áskrift.
__________________________________________________________________________________________________________

The GOAT Michael Dunlop
2. júní
Þrítugasti sigur Michael Dunlop í Isl of Man TT
Eftir afar spennandi Superbike keppni í morgun þar sem Michael Dunlop varð annar , Þá var keppt eftir hádegi í Supersport keppninni. Supersport eru minni hjól 600cc 4 cyl, en leyfilegt að hafa stærri mótora í ef hjólið er 3 cyl 675cc og tveggja cylindra eins og Ducati 937cc…
Fyrri hluta keppninar leiddi Dean Harrison (Honda) en jafnt og þétt dróg Michael Dunlop (Ducati) niður forskotið og tók foristuna fljótlega eftir pittstoppið og jók hann foristuna jafnt og þétt og sigraði með 13sek forskoti.

3 á palli.
James Hillier (Kawasaki) varð svo í þriðja sæti sem er mjög góður árangur hjá honum en hann var síðast á verðlaunapalli 2019.
David Todd sem sigraði Superbike keppnina í morgun varð svo fjórði á Honda.
Michael Dunlop er sá maður er unnið hefur flestar keppnir í TT frá upphafi en hann tók metið af frænda sínum Joey Dunlop (dó árið 2000) í fyrra en hann hafði unnið 26 keppnir á TT.

Michael Dunlop og Milwakee Ducati hjólið
Þetta var einnig sjöundi sigur Dunlop á mismunadi tegundum mótorhjóla, og fyrsti sigur Ducati á Isl og Man TT síðan 1995 þegar nýsjálendingurinn Robert Holden vann eins cylindra keppnina.
.
__________________________________________________________
1 júní 2025

David Todd
Geggjuð Superbike keppni á Isl of Man TT í morgun.
Frábærar aðstæður voru á eyjunni Mön í morgun er Superbike keppnin fór fram. Eknir voru 4 hringir X 60,7 km = 243km með einu pittstoppi þar sem flestir skiptu um afturdekk og tóku bensín.

Strax í upphafi kom í ljós að David Todd og Michael Dunlop báðir á BMW hjólum myndu slást um sigurinn. David Todd var í við hraðari í fyrstu og var kominn með 8 sekundna forskot þegar þeir fóru í pittsstoppið. Pittstoppið á Mön hafa oft ráðið úrslitum í þessum keppnum þar sem pittliðin geta gert mistök. Eftir pittinn þá kom í ljós að Todd hafði tekið 6 sekunda hægara pittstopp, og var þá kominn gríðaleg spenna í keppnina. Smávægilega mistök hjá Todd gerði þetta svo enn meira spennandi er bilið milli þeirra var komið niður í 0.2 sekundur. En David Todd brást vel við því með frábærum akstri og náði bilinu aftur upp í tæpar 2 sekúndur undir lokin og sigraði með stæl. en þá var bilið aðeins rúm sekunda sem er ótrúlegt eftir 243km kappakstur.
Í öðru sæti var Michael Dunlop BMW og þriði var Dean Harrison á Honda

Peter Hickman kominn í pittinn af spítalanum (hann er úr leik í ár
Geggjuð keppni og gaman að horfa á .

_________________________________________________________________
Viðtal við Richard Hammond út af TT keppninni.
____________________________________________________________________________________________
1 júní
Peter Hickman enn af sigursælli ökumönnum í isl of Man TT er líklega úr leik eftir
krass á opnunarhring á þriðju æfingu.
Hann er sagður með meðvitund og heilsa hans stöðug. Hann er í aðgerð á spítala þar sem gert er að baki, öxlum,brjóstkassa og andliti.
Annar ökumaður fór einnig í götuna í æfingum gærdagsins
Tom Weeden krassaði við Glen Helen og er hann einnig á spítala með bak og fótameiðsli.
Þetta er stórhættulegt og vonandi verður ekki meira af þessu.
En líklega er það bara óskhyggja þar sem þetta er hættulegasti kappakstur í heimi.

Peter Hickman