Á mótorhjóli um Toscanahérað á Ítalíu:
Ítalía er sem lifandi listasafn. Hvert sem litið er blasir ýmist við minnismerki eða listaverk af einhverju tagi, einstakt útsýni eða fallegir staðir sem allt heillar hugfanginn ferðamann. Ítalía er landið sem gaf okkur pizzurnar og pastað og ein helsta ástríða Ítaia felst einmitt í því að borða. Þeirra trú er sú að hvergi í heiminum sé maturinn betri en „heíma“ og eru fleiri á þeirri skoðun.
Ítalía er land þeirra sem kjósa frjálsræði á ferðalögum. Hver landshluti bíður upp á lifandi og sögufrægar borgir en jafnframt er óhætt að segja að það sé synd að líta ekki út fyrir borgarmörkin og á hreint ótrúlega fallegar sveitirnar. Hvað þá á mótorhjóli.
Þeim sem hafa takmarkaðan tíma til ferðalaga er ráðlagt af fróðu fólki að gera áætlun um hvað skuli sjá og gera í landi eins og Ítalíu. í einu tilfelli, þar sem um tveggja vikna flakk var að ræða af bestu gerð á Ítalíu, var sest yfir kort og bækur og þegnar ráðleggingar þeirra sem vel þekkja til.
Ákveðið var að fljúga til Mílanó, fara þaðan niður vesturströndina til bæjarins Santa Margarita áleiðis til Toscanahéraðs en hluti af Toscana skyldi jafnframt frekar kannaður í lítilli mótorhjólaferð sem alltaf hafði verið draumurinn. Ráðleggingar allra reyndust óbrigðular og mótorhjólaferðin draumur á allan hátt. Ferðahandbókin Lonely Planet mælir með því að á einni viku á Ítalíu sé farið til borgarinnar Flórens með frekari ferðum um Toscana til borgarinnar Siena og San Gimignano. Sú ferð gefur góða mynd af töfrum héraðsins á allan hátt, hvort sem menn vilja sjá einstakt landsvæði eða borða einstakan mat. Flórens er sú borg sem verður að heimsækja sé farið til Ítalíu, enda fáar borgir í heiminum jafnríkar af sögu, menningu og listum. Það má gefa sér nokkra daga á göngu um borgina en þegar hungrið sækir að skal mælt með veitingastöðunum Paoli, Antico Ristorante (Via Tavolini 12, sími: 0552-16215) og Trattoria Bordino (Via Stracciatella 9R. sími: 0552- 13048). Hótel Victoria (eigandinn Danilo er mjög hjálplegur íslendingum) á Via Nationale 102 Red. er á besta stað í borginni og góður gististaður (sími: 0552- 87019). Það er skynsamlegra og betra, með tilliti til umferðar, ef stefnt er að því að ferðast á mótorhjóli um þetta svæði, að hefja förina í Siena. (Tekið skal fram að mótorhjólapróf frá íslandi þarf til að leigja mótorhjól en venjulegt ökupróf er nóg til að leigja minni eða stærri vespur sem reynast víst ótrúlega vel). Mótorhjóla- og vespuleiga á Parka Calizza í Siena er góð með liðlegum eiganda (sími: 0557-288387).
Siena er best varðveitta miðaldaborg Ítalíu. Hún er byggð á þremur hæðum og prýdd sögufrægum, gotneskum byggingum sem ekki skal láta fram hjá sér fara. Mjög auðvelt er að komast út úr Siena og á sveitavegina (No 2 í þessu tilfelli) til þess að halda í norðvestur til borgarinnar San Gimignano. Á leið þangað eru mörg tækifæri til þess að staldra við, fá sér drykk og mat og njóta útsýnisins og bærinn Monteriggioni er tilvalinn til þess. Hann er byggður innan virkisveggja, er sérstaklega smágerður allur vegna þess og taldist hluti af þeirri leið sem tengdi Róm við Norður-Evrópu á miðöldum. Útsýnið frá Monteriggioni er fallegt og sést yfir víðar lendur Toscana en það er ennþa betra þegar komið er til „Litlu Manhattan“ eða bæjarins San Gimignano.
Það eru fáir staðir á Italíu sem búa yfirjafn mikilli fegurð og San Gimignano,sem er bær sem nánast ekkert hefur breyst frá miðöldum. Þessi litli bær, sem stendur uppi á hárri hæð, er þekktur fyrir turnana sína (14 af 72 turnum standa enn) en þeir voru tákn um sterka stöðu bæjarins á miðöldum. Það eru bleikir, grænir og gylltir tónar náttúrunnar sem umlykja San Gimignano sem og allt það svæði sem keyrt er um þegar farið er í gegnum litla og fallega bæi eins og Colle di Val dTilsa og Casole d’Elsa. Það var þar sem lagst var til svefns en tekið skal fram að á þessari leið frá Siena er um mjög marga góða gististaði að ræða. Þeir eru í sama gæðaflokki og Hotel Gemini (Casole d’Elsa 53031, sími: 0577- 948622, fax: 0577-948241) en þar er óhætt að mæla með frábærum mat. Sama má segja um hótelíbúðirnar á II Colombaio (Casole d’Elsa 53031, sími: 0577-948453, fax: 055-8720359) en sá gististaður er glæsilegur með öllum hugsanlegum þægindum á góðu verði. Ekki má gleyma að nefna veitingastaðinn við þennan hótelíbúðakjarna en hann er eins „ekta“ ítalskur og hugsast getur með „mömmu“ í eldhúsinu.
Frá Casole d’Elsa var aftur haldið til Siena á hægagangi á mótorhjólinu og hringnum þar með lokað. Þessi mótorhjólaferð var á enda en margar fleiri eru fram undari eftir lítið ferðalag um sannkallað draumaland. Frá Siena var haldið til Bologna til að borða spagettí og þaðan til Feneyjasem er sérkafli út af fyrir sig.
Vikan 24tbl. árið 2000