Í bók minni „Þá riðu hetjur um héruð – 100 ára saga mótorhjólsins á Íslandi“ er frásögn breska hermannsins Ernest Walters af fyrstu mótorhjólakeppninni sem fram fór hérlendis svo vitað sé. Fór hún fram árið 1940 og er henni vel lýst, en eina myndin sem fylgdi greininni er mynd sem Ernest teiknaði sjálfur af sér að aka yfir á. Svo gerðist það að flugvirkinn Hinrik Steinsson, sem safnað hefur öllu sem tengist sögu styrjaldarinnar á Íslandi, fékk í hendur myndaalbúm frá Alabaster Force sem var innrásarlið Bretanna sem komu hingað í maí 1940.

Meira á ….  Fornhjól.is