Eitt glæsilegasta mótorhjólasafn heims er staðsett á Akureyri. Þar er saga mótorhjólsins á Íslandi varðveitt og má þar finna mörg af merkilegustu hjólum landsins.

Mótorhjólasafn Íslands á Akureyri var stofnað árið 2007 til minningar um Heiðar Jóhannesson sem var einn mesti mótorhjólakappi landsins. Hann lést í mótorhjólaslysi árinu áður.

Bjarki Sigurðsson skrifar
Heiðar hafði sjálfur hugmyndir um að opna kaffihús eða súpueldhús með mótorhjólum en eftir að hann féll frá þurftu vandamenn hans að grípa hugmyndirnar.

Á safninu má finna yfir hundrað hjól sem öll eiga sér sína eigin sögu.

„Þegar koma hér erlendir gestir, það hafa komið blaðamenn sem skrifa um hjól, þeim finnst skemmtilegast að koma á mótorhjólasafn þar sem er verið að segja sögu mótorhjólsins í því landi eins og hér, við erum að segja sögu mótorhjólsins á Íslandi. þetta er svo lítið blandað, hjólin eru ekki öll full uppgerð og þetta sýnir söguna,“ segir Tómas Ingi Jónsson sem er einn hollvina safnsins og með einn þeirra fróðustu um sögu hjólsins á landinu.

Og einn flottasti gripur safnsins er 1918 Hendersen-hjól sem er elsta hjól safnsins. Hjólið var gert upp af Grími Jónssyni.

„Byrjaði að gera þetta upp í kringum 2000 og þessi listasmíð leit dagsins ljóst árið 2012 um svipað leyti og hann þurfti að kveðja sjálfur. En hann sá hjólið keyra. Þetta er eðaldýrgripur safnsins, aðal sýningargripur okkar,“ segir Tómas.

Á safninu má ekki einungis finna sagnfræðilegar heimildir fyrir sögu mótorhjólsins heldur er það stútfullt af sögum um helstu mótorhjólafrumuði Íslands.


Stöð 2 greindi frá.