Bif­hjóla­sam­tök lýðveld­is­ins, Snigl­ar, hyggj­ast mót­mæla frum­varpi um kíló­metra­gjald. Snigl­arn­ir segja frum­varpið órétt­látt og hafa lagt fram til­lögu að nýju „sann­gjörnu“ kíló­metra­gjaldi.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu.

Þá segja sam­tök­in bif­hjól í eðli sínu marg­falt létt­ari en bíl­ar og kíló­metra­gjöld eigi að end­ur­spegla það

Í rök­stuðningi fjár­málaráðherra um gjald­tök­una er vísað í um­fangs­mikla vetr­arþjón­ustu. Þjón­ustu sem að sögn Snigl­anna er lítið sem ekk­ert notuð af bif­hjóla­eig­end­um þar sem bif­hjól eru ekki í notk­un yfir vetr­ar­tím­ann.

Til­laga að nýju kíló­metra­gjaldi                                                                                         Bifhjólamenn ósáttir við gjaldið frétt á mbl 10.6.2025

Snigl­ar hafa stungið upp á nýrri gjald­töku, sem er „sann­gjörn“ og „raun­hæf.“

Fyr­ir­ætluð kíló­metra­gjöld frum­varps­ins nema 6,7 krón­um á hvern kíló­metra fyr­ir bif­hjól, sem vega 400 kíló eða meira. Þá eru 4 krón­ur lagðar á fyr­ir hvern kíló­metra fyr­ir létt­ari bif­hjól og skell­inöðrur.

Til­laga Snigla er tölu­vert kostnaðarminni fyr­ir bif­hjóla­eig­end­ur. Þá leggja þeir til 1,7 krón­ur á kíló­metra fyr­ir bif­hjól og 0,6 krón­ur á kíló­metra fyr­ir létt­ari bif­hjól og skell­inöðrur.

Sniglarnir halda samstöðufund á Smiðjuvegi 1 í kvöld.

 


 mbl.is/Eggert Jóhannesson
MBL.is 19.6.2025

.