H-D ice Heldur mótið

Við erum orðin gríðarlega spennt fyrir Landsmótinu og mikill stemmari í hópnum fyrir veizlunni sem framundan er!

Smá update varðandi gistingu, hótelherbergi og örlítið breyttar forsendur varðandi tjaldsvæðið❤
🏨Hótel Varmaland: Búið er að taka frá 7 tveggja manna herbergi fyrir hótelþyrsta leikmenn. Til að panta herbergi er best að heyra í hótelinu og nefna H-DCICE klúbbinn og herbergið er ykkar. Hér gildir lögmálið fyrstur kemur fyrstur fær og því hvetjum við ykkur að hafa hraðar hendur.
⛺️Tjaldsvæðið: Í Forsölu sömdum við um að tjaldsvæðið væri innifalið í verðinu, og stendur það enn.
Ekki náðust samningar varðandi áframhaldandi 100% afslátt og eru forsvarsmenn Hótel Varmalands tilbúnir til að gefa þeim allra hörðustu sem ætla að gista í tjaldi 50% afslátt, 7.500 kr. fyrir alla helgi.
Þeir sem ætla að gista eina eða tvær nætur fá líka 50% afslátt af verði.
Ath. Ekki þarf að panta tjaldgistingu í appi, bara mæta á svæðið!
Hlökkum mikið til að sjá ykkur í gír og glensi, í leðri og öllu veðri!

H-D ice Heldur mótið 

Hljómsveitir – Veitingar – Uppistand – Skutluleikar – Harley shop – Hrímþursasúpan – DJ – Tattoo – Happdrætti – Sund – Bar – Uppboð – AA fundir