Hiroko Hori (1949–1985) Var fyrsta konan í Japan til að keppa í mótorhjólakstri en ferill  hennar hófst á  lítilli Honda Super Cub, sem kveikti ástríðu hennar fyrir mótorhjólum.

Hiroko Hori

 
Árið 1976 – á tímum þegar konum bannað að keppa í mótorsporti í Japan –en hún keppti samt í götukappakstri í Japan. Frábær frammistaða hennar varð samt þess að breytingar á reglum urðu til þess að konum var leyft að keppa í mótorsporti.

Hori hafði metnað sem náði langt út fyrir kappakstursbrautina; hún lagði meðal annars upp í 40.000 km ferðalag um 25 lönd á Honda CB750F mótorhjóli frá 1975, sem sýndi ævintýraþrá hennar í verki. Árið 1978 stofnaði hún jafnframt „Powder Puff“-keppnina, fyrstu mótorhjólakeppni Japans eingöngu fyrir konur, og setti á laggirnar „Hirokono“, búð sem sérhæfði sig í mótorhjólafatnaði fyrir konur.

Meðal hápunkta í keppnisferli hennar voru samfelld þátttaka í 4 tíma þolkeppninni á Suzuka-brautinni árin 1980 og 1981, þar sem hún keppti í tveggja kvenna liði á 400cc Suzuki
 Með því að takast á við yfir 200 mílur af krefjandi kappakstri sýndu Hori og liðsfélagi hennar að þær stóðu jafnfætis öðrum í einni erfiðustu keppni Japans.

Hori skráði ævintýri sín í bækur og ferðasögur. Eitt frægasta verk hennar, „Ég, Sahara og mótorhjól“, lýsir ströngu 8.000 km ferðalagi hennar yfir Sahara-eyðimörkina á Suzuki DR500.

Því miður lést Hori árið 1985 þegar hún var að undirbúa nýtt ævintýri í Taklamakan-eyðimörkinni í Kína. Arfleifð hennar – full af frelsi og ævintýraandi – talar til allra þeirra  sem aka mótorhjóli.

Sú staðreynd að konur eru nú sjálfsagður hluti af mótorhjólakappakstri er henni og öðrum frumkvöðlum að þakka.

Although specific details about the circumstances of her death are scarce, it is known that she died during the planning stages of this journey. Her untimely passing at the age of 36 marked the end of a remarkable career that broke gender barriers in Japanese motorsport and inspired countless riders.