15 maí er afmælisdagurinn hans Heidda, Heiðars Þ Jóhannssonar sennilega einn þekktasti mótorhjólamaður landsins , og örugglega Akureyrar en safn hefur risið þar í hans minningu og klúbburinn Tían stofnuð í minningu hans og nafnið númerið hans í Sniglum #10 (Tían).
En um helgina mun „Tían Bifhjólaklúbbur Norðuramts“ vera með nokkra viðburði.
Bjórkvöld verður á Safninu á föstudagskvöldið frá 20-24
Skoðunardagur verður á Laugardagsmorguninn í Boði BA og Tíunnar. í Frumherja, Ath bara fyrir greidda félaga í Tíunni og BA.
Hópkeyrsla Tíunnar verður svo eftir hádegi, þe frá Ráðhústorgi kl 14 … gott er að vera mætt áður, 13:30 er til dæmis gott.
Tekinn verður góður hringur um bæjinn og endað svo í Kirkjugarðinum þar sem blóm verða lögð á leiðið hjá Heidda.
Mótorhjólasafnið verðu með opið um helgina og ætla þeir að taka forkot á sæluna og opna sérstaka sýningu til heiðurs Hilmari Lúthersyni Snigils NR #1 (Timerinn) hann er líka einn þekktasti snigillinn og er hann búinn að gera upp í gegnum tíðina mikinn fjölda af mótorhjólum, sérstaklega Bresk hjól og verða c.a. tíu af hans hjólum á safninu einnig verður 6 fermetra mynd af kallinum sett upp og videoviðtal.
Sýningin mun standa í eitt ár og verður í suðaustursalnum á safninu.
Hilmar mun líka stinga inn nefinu um helgina og kíkja á allt bramboltið.
Það er því kjörið að kíkja á safnið eftir hópkeyrslu , ná sér í kaffibolla og skoða.