Ferðin á pólinn var 3.200 km og tók rúmar tvær vikur, en hún hófst í Novo þar sem teknir voru nokkrir dagar í að venjast aðstæðum. Hjólin voru á sérstökum nagladekkjum og lægra gíruð en gengur og gerist enda er akstur á mótorhjóli í snjó langt frá því að vera auðveldur. Einnig voru gerðar sérstakar ráðstafanir með vélina sem þurfti að þola meira en 40 gráðu frost, en aðstæður eru nú með besta móti á Suðurpólnum þar sem nú er sumar. Santosh Vijay Kumar og Dean Coxson eru þó ekki fyrstu mennirnir til að komast þessa leið því árið 1992 fór hinn japanski Shinji Kazama einn síns liðs á Suðurpólinn á Yamaha 200 torfæruhjóli, og hafði þá áður lokið ferð á Norðurpólinn fimm árum áður.