Hér á Akureyri fögnuðu nokkrir bifhjólamenn sumri með því að skella sér austur fyrir heiði til Húsavíkur.

Mjög gott veður þó hitastigið hefði mátt vera hærra en fínasta hjólaveður.
Er komið var til Húsavikur var þeim boðið í Vöfflukaffi hjá Sigrúnu og Haffa sem var vel þegið.

Í bakaleiðinni komu þeir útafakstri bifreiðar í Fnjóskadal þar sem fjölskylda var á ferð, og aðstoðuðu þeir fjölskylduna þar til hjálp barst fra lögreglu og sjúkraliði.

Ekki var talið að fólkið væri alvarlega slasað.
En að öðru leyti fín ferð og góð byrjun á sumri..