Landsmótsmerki Snigla 1987
Landsmótsmerki Snigla 1987
2,000kr.
Þessi merki teiknaði Jónas Viðar eftir fyrirmælum. Voru prentuð í lítilli prentsmiðju í heimahúsi við Hamarstíg á Akureyri með lánsgræjum, græju til að pressa í barmmerki. Svo voru nokkrir félagar í Sniglunum sem hömuðust á handknúinni græjunni að gera allt klárt fyrir mót.
25 á lager
Fyrsta landsmót Snigla var haldið í Húnaveri 1987 og datt engum ungum mótorhjólamanni þá í hug að sú hefð að halda Landsmót myndi halda áfram næstu 40 ár!
Ath að merkið er ekki upprunalegt frá 1987 heldur endurgert.
Sala merkjana er til styrktar Mótorhjólasafni Íslands
Merkið er með nælu til að festa í fatnað
Takmarkað magn í boði.














